Grátlegt tap Íslendingaliðsins á Ítalíu

Mikael Egill Ellertsson.
Mikael Egill Ellertsson. Eggert Jóhannesson

Íslendingalið Venezia mátti þola tap fyrir Torino, 1:0, í ítölsku A-deild karla í knattspyrnu í Feneyjum í dag. 

Venezia, sem er nýliði í efstu deild, er með eitt stig eftir þrjá leiki og í 19. og næstneðsta sæti. 

Sigurmark Tornio kom undir lok leiks en það skoraði Saul Coco

Mikael Egill Ellertsson lék allan leikinn fyrir Venezia en Bjarki Steinn Bjarkason er að glíma við meiðsli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert