Knattspyrnumaðurinn Orri Steinn Óskarsson var besti ungi leikmaður dönsku úrvalsdeildarinnar í ágúst.
Deildin kynnti Orra sem leikmann mánaðarins á samfélagsmiðlinum X, en Orri var einnig besti ungi leikmaður deildarinnar í júlí.
Orri lék fjóra leiki í deildinni með FCK í ágúst og skoraði í þeim þrjú mörk. Hann er með fimm mörk í sex leikjum í deildinni á tímabilinu.
Er Orri mjög eftirsóttur því hann hefur verið orðaður við félög á borð við Manchester City, Girona, Porto og Real Sociedad undanfarnar vikur.
Juli ✅ August ✅
— 3F Superliga (@Superligaen) August 30, 2024
Orri Oskarsson er endnu en gang Månedens Unge Spiller i 3F Superliga 🏆
Stort tillykke til det islandske talent 👏👏#sldk | #ditholdvoresliga pic.twitter.com/jfhKEJJbvi