Hrósar Heimi í hástert

Heimir Hallgrímsson er á leiðinni í sína fyrstu leiki sem …
Heimir Hallgrímsson er á leiðinni í sína fyrstu leiki sem landsliðsþjálfari Írlands. Ljósmynd/@IrelandFootball

Írinn John O‘Shea, fyrrverandi leikmaður Manchester United og núverandi aðstoðarmaður Heimis Hallgrímssonar hjá írska landsliðinu í fótbolta, er spenntur að vinna með Eyjamanninum.

O‘Shea ræddi við írska fjölmiðla í gær, eftir að hann og Heimir kynntu sinn fyrsta landsliðshóp fyrir leikina við England og Grikkland á heimavelli í Þjóðadeildinni.

„Það varð strax til gott traust á milli okkar eftir gott samtal. Hann vill hafa hlutina einfalda og árangursríka. Ég er hrifinn af því hvernig hann sér hlutina.

Það þurfti enginn að sannfæra mig um að vinna með honum. Ég vissi um leið að ég myndi njóta þess. Ég er að læra sem þjálfari og það er hægt að læra margt af Heimi,“ sagði O‘Shea við írsku útgáfuna af Independent.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert