Ísak Bergmann og félagar á toppinn

Ísak Bergmann Jóhannesson eftir leik með Düsseldorf.
Ísak Bergmann Jóhannesson eftir leik með Düsseldorf. Ljósmynd/Düsseldorf

Landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson og liðsfélagar hans í Düsseldorf eru komnir í toppsæti þýsku 2. deildarinnar í fótbolta. 

Düsseldorf vann Hannover, 1:0, á heimavelli í Düsseldorf í dag en liðið er með tíu stig eftir fyrstu fjóra leikina á toppnum. 

Ísak Bergmann lék allan leikinn fyrir Düsseldorf en sigurmark liðsins skoraði Danny Schmidt á 59. mínútu leiksins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka