Ronaldo útilokar ekki endurkomu

Aleksander Ceferin og Ronaldo ræða saman í gær.
Aleksander Ceferin og Ronaldo ræða saman í gær. AFP/Valery Hache

Knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo var heiðursgestur UEFA er dregið var í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í Mónakó í gær.

Ronaldo er markahæsti leikmaður keppninnar frá upphafi og ræddi hann stuttlega við  Aleksander Ceferin forseta UEFA á sviðinu fyrir dráttinn.

Slóveninn spurði þann portúgalska hvort það væri möguleiki á endurkomu til Evrópu og í Meistaradeildina.

„Það getur allt gerst í fótbolta. Við sjáum hvað gerist,“ svaraði Ronaldo.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert