Sigur í fyrsta leik landsliðsfyrirliðans

Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur fara vel af stað.
Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur fara vel af stað. AFP/Justin Tallis

Þýskalandsmeistarar Bayern München fara vel af stað í 1. deildinni í fótbolta þarlendis en liðið vann nýliða Turbine Potsdam, 2:0, á útivelli í dag. 

Þetta var fyrsti leikur þýsku deildarinnar á tímabilinu en landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir lék að vanda allan leikinn fyrir Bæjara. 

Svíinn Linda Sembrant skoraði bæði mörk Bayern. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert