Spænska félagið reynir að kaupa Orra í dag

Orri Steinn Óskarsson er eftirsóttur.
Orri Steinn Óskarsson er eftirsóttur. Ljósmynd/Alex Nicodim

Spænska knattspyrnufélagið Real Sociedad ætlar að reyna hvað það getur til að kaupa Orra Stein Óskarsson af FC Kaupmannahöfn í dag en félagaskiptaglugganum verður lokað á miðnætti.

Ítalski blaðamaðurinn Matteo Moretto greinir frá. Orri hefur byrjað tímabilið gríðarlega vel með FCK, sem hefur vakið athygli stærri félaga í sterkari deildum. Var Orri m.a. orðaður við Manchester City í síðustu viku.

Spænska félagið Girona lagði fram tilboð í Orra í sumar, sem FCK hafnaði. Þá hefur Porto einnig áhuga á íslenska leikmanninum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert