Fullkomið tímabil hélt áfram

Ekkert stöðvar Guðrúnu Arnardóttur og liðsfélaga hennar.
Ekkert stöðvar Guðrúnu Arnardóttur og liðsfélaga hennar. Ljósmynd/Alex Nicodim

Rosengård hafði betur gegn AIK, 5:1, á útivelli í Stokkhólmi í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Rosengård er þar með enn með fullt hús stiga eftir 17 leiki.

Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Rosengård að vanda. Mai Kadowaki gerði tvö mörk fyrir Rosengård og þær Rebecca Knaak og Momoko Tanikawa sitt markið hvor. Eitt markanna var sjálfsmark.

Rosengård er með 51 stig, ellefu stigum meira en Häcken í öðru sæti.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka