Fyrsta markið í tæpt hálft ár

Davíð Kristján Ólafsson skoraði.
Davíð Kristján Ólafsson skoraði. Ljósmynd/Cracovia

Radomiak Radom vann sigur á Cracovia á heimavelli, 2:1, í efstu deild Póllands í fótbolta í kvöld.

Davíð Kristján Ólafsson lék seinni hálfleikinn með Cracovia og skoraði mark liðsins er hann minnkaði muninn í 2:1 á 63. mínútu.

Var markið það fyrsta sem Davíð skorar frá því hann skoraði gegn Korona Kielce 9. mars.

Þrátt fyrir tapið er Cracovia í þriðja sæti með 13 stig eftir sjö leiki.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka