Knattspyrnumaðurinn Hólmbert Aron Friðjónsson er kominn í raðir Preussen Münster sem leikur í þýsku B-deildinni. Hann kemur til félagsins frá Holstein Kiel, sem fór upp úr B-deildinni á síðustu leiktíð.
Hólmbert, sem er 31 árs, lék með Holstein Kiel frá 2021 til 2024. Komst liðið upp í efstu deild á síðustu leiktíð en samningur Hólmberts var ekki framlengdur.
Preussen Münster hafnaði í öðru sæti þýsku C-deildarinnar á síðustu leiktíð og vann sér inn sæti í B-deildinni.
Þar á undan vann liðið vesturhluta D-deildarinnar og hefur því farið upp um tvær deildir á tveimur tímabilum.