Landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir byrjar nýtt tímabil í þýsku 1. deildinni með látum en hún og liðsfélagar hennar í Leverkusen unnu útisigur á Freiburg, 3:2, í fyrstu umferðinni í dag.
Karólína var í byrjunarliðinu og hún lagði upp tvö fyrstu mörk síns liðs. Fyrst lagði hún upp á Janou Levels sem jafnaði í 1:1 á 37. mínútu og síðan á Selinu Ostermeier sem kom Leverkusen í 2:1 á 45. mínútu.
Karólína var tekin af velli á 75. mínútu, eftir að hún hafði skilað góðu dagsverki. Hún er á sínu öðru tímabili að láni hjá Leverkusen frá Bayern München.