Stórleikur landsliðsmannsins í Danmörku

Mikael Anderson skoraði og lagði upp.
Mikael Anderson skoraði og lagði upp. Ljósmynd/Alex Nicodim

AGF hafði betur gegn Nordsjælland, 4:2, í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Landsliðsmaðurinn Mikael Anderson átti afar góðan leik fyrir AGF. Hann lagði upp annað mark liðsins og skoraði það þriðja sjálfur. Lék hann allan leikinn. 

Mikael hefur spilað vel á leiktíðinni, skorað tvö mörk og lagt upp fjögur til viðbótar í sjö umferðum í dönsku úrvalsdeildinni.

Liðið er í toppsætinu með 16 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert