Kristall skoraði í jafntefli

Kristall Máni Ingason skoraði í dag.
Kristall Máni Ingason skoraði í dag. Ljósmynd/SönderjyskE

Kristall Máni Ingason skoraði annað mark Sønderjyske í 2:2 jafntefli liðsins gegn Viborg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Kristall og Daníel Grétarsson spiluðu allan leikinn. Sønderjyske var 2:0 yfir í hálfleik en Viborg minnkaði muninn á 52. mínútu og jafnaði á 72. mínútu.

Sønderjyske er í 11. sæti með fimm stig eftir 11 leiki og Viborg er í áttunda sæti með sex stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka