Leik Kristians frestað vegna verkfalls lögreglumanna

Kristian Nökkvi Hlynsson er leikmaður Ajax.
Kristian Nökkvi Hlynsson er leikmaður Ajax. AFP/Maurice van Steen

Leik Ajax gegn Feyenoord í hollensku deildinni í knattspyrnu var frestað vegna verkfalls lögreglumanna í landinu.

Leikurinn átti að fara fram klukkan 12:30 í dag en var frestað og ekki er kominn ný dagsetning. Lögreglan neitaði að vinna á leiknum en hún er að berjast fyrir réttindum sínum.

Mikil læti voru síðast þegar liðin mættust og lögreglumenn slösuðust í september á síðasta ári þegar Ajax var 3:0 undir og stuðningsmenn liðsins köstuðu flugeldum inn á völlinn. Kristian Nökkvi Hlynsson er leikmaður Ajax og spilaði hálfleik í þeim leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka