Mbappé hetja Real Madrid

Kylian Mbappé var hetjan í Madrídarborg.
Kylian Mbappé var hetjan í Madrídarborg. AFP/Thomas Coex

Franska knattspyrnustjarnan Kylian Mbappé var hetja Real Madrid í sigri á Real Betis, 2:0, í 1. deild Spánar í Madrídarborg í kvöld. 

Mbappé skoraði bæði mörk Real Madrid en þetta voru hans fyrstu mörk í spænsku deildinni eftir brösuglega byrjun. 

Real Madrid er í öðru sæti deildarinnar með átta stig, fjórum minna en topplið Barcelona. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert