Luis Suárez skoraði tvö mörk í 4:1-sigri Inter Miami gegn Chicago Fire í bandarísku MLS-deildinni í fótbolta í nótt.
Miami var 1:0 yfir í hálfleik en Tobias Salquist skoraði sjálfsmark á 25. mínútu. Suárez skoraði svo annað mark Miami strax á 46. mínútu eftir stoðsendingu frá Diego Gomez og skoraði aftur á 65. mínútu eftir stoðsendingu frá Jordi Alba áður en hann fór út af á 80. mínútu.
Luis Suarez tucks it away to double the lead. 🇺🇾
— Major League Soccer (@MLS) September 1, 2024
📺 #MLSSeasonPass: https://t.co/lXhntH2IB8 pic.twitter.com/hpdhe3k0sm
Busquets to Alba to Suarez
— Major League Soccer (@MLS) September 1, 2024
Classic big brain Busquets on the quick restart. 🧠 pic.twitter.com/yJN2la4CP8
Georgios Koutsias skoraði fyrir Chicago á 82. mínútu og minnkaði muninn í 3:1 en Robert Taylor skoraði fjórða mark Miami á þriðju mínútu uppbótartímans.
Miami er í 1. sæti deildarinnar með 59 stig eftir 27 leiki.