Brösugleg byrjun liðsfélaga Alberts

Albert Guðmundsson í búningi Fiorentina.
Albert Guðmundsson í búningi Fiorentina. Ljósmynd/Fiorentina

Fiorentina hefur ekki enn unnið leik í ítölsku A-deild karla i knattspyrnu en liðið gerði jafntefli á heimavelli gegn Monza, 2:2, í þriðju umferðinni í gær. 

Fiorentina hefur gert jafntefli í fyrstu þremur leikjum sínum í deildinni en liðið er í 11. sæti með þrjú stig. 

Albert Guðmundsson hefur enn ekki spilað fyrir liðið en hann er að glíma við meiðsli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert