Cecilía heiðruð fyrir glæsilega byrjun

Cecilía Rán Rúnarsdóttir byrjar afar vel með Inter.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir byrjar afar vel með Inter. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Cecilía Rán Rúnarsdóttir landsliðsmarkvörður í fótbolta byrjar afar vel hjá ítalska stórliðinu Inter Mílanó.

Hin 21 árs gamla Cecilía hélt hreinu gegn Sampdora í fyrsta leik með liðinu og var í kjölfarið valin í lið fyrstu umferðarinnar, en úrvalsliðið var birt á heimasíðu ítalska knattspyrnusambandsins í dag.

Cecilía átti fimm markvörslur í leiknum og nýtti hæð sína hvað eftir annað og greip boltann 13 sinnum eftir fyrirgjafir.

Hún er að láni hjá félaginu frá Þýskalandsmeisturum Bayern München, en Cecilía hefur lítið spilað undanfarna mánuði vegna meiðsla.

Cecilía er í liði fyrstu umferðarinnar.
Cecilía er í liði fyrstu umferðarinnar. Ljósmynd/Ítalska knattspyrnusambandið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert