Í 13. sæti en aðeins fjórum stigum frá toppnum

Freyr Alexandersson, þjálfari Kortrijk.
Freyr Alexandersson, þjálfari Kortrijk. Ljósmynd/@kvkofficieel

Lærisveinar Freys Alexanderssonar í Kortrijk gerðu jafntefli, 1:1, á heimavelli gegn Sint-Truiden í belgísku A-deildinni í fótbolta í gær. 

Kortrijk er í 13. sæti af 16 liðum með sjö stig eftir fyrstu sex leikina. Hins vegar er allt í járnum í belgísku deildinni en Dender EH, sem er á toppnum, er með ellefu stig, fjórum stigum meira en Kortrijk. 

Patrik Gunnarsson varði mark Kortrijk að vanda en liðið mætir næst stórliði Club Brugge eftir landsleikjakahlé. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert