Landsliðsmaðurinn í liði umferðarinnar

Mikael Anderson er að spila vel með AGF.
Mikael Anderson er að spila vel með AGF. Ljósmynd/Alex Nicodim

Knattspyrnumaðurinn Mikael Neville Anderson er í úrvalsliði sjöundu umferðar dönsku úrvalsdeildarinnar.

Mikael hefur leikið afar vel með AGF frá Árósum á leiktíðinni og komið með beinum hætti að sex mörkum í fyrstu sjö umferðunum.

Hann skoraði og lagði upp í 4:2-sigri á Nordsjælland um helgina. Mikael getur spilað flestar stöður á miðjunni og sókninni, en hann er á vinstri kantinum í liði umferðarinnar, sem samfélagsmiðladeild deildarinnar birtir á X.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert