Orri Steinn sá fyrsti í sjö ár

Orri Steinn Óskarsson þegar tekin er ljósmynd af honum með …
Orri Steinn Óskarsson þegar tekin er ljósmynd af honum með stuðningsmanni í gær. Ljósmynd/Real Sociedad

Landsliðsmaðurinn Orri Steinn Óskarsson kom inn á í fyrsta leik sínum fyrir Real Sociedad í markalausu jafntefli gegn Getafe á útivelli í efstu deild spænsku knattspyrnunnar í gær. 

Orri gekk í raðir félagsins á dögunum en hann er dýrasti leikmaðurinn til að vera keyptur frá FC Köbenhavn. 

Orri kom inn á 66. mínútu. Næsti leikur Sociedad er á heimavelli gegn Real Madrid, eftir landsleikjahléið. 

Hann er sjöundu Íslendingurinn til að spila í spænsku deildinni og sá fyrsti í sjö ár, eða síðan Sverrir Ingi Ingason lék með Granada. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert