Stuðningsmenn furða sig á fjarveru Sveindísar

Sveindís Jane Jónsdóttir.
Sveindís Jane Jónsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir er ekki með Wolfsburg í leik liðsins gegn Werder Bremen í þýsku 1. deildinni í fótbolta í dag. 

Ekki er ljóst af hverju Sveindís er ekki með Wolfsburg í dag en hún er í stóru hlutverki hjá liðinu. Hún lék meðal annars allan leikinn gegn Bayern München í Meistarabikar Þýskalands undir lok ágúst. 

Stuðningsmenn Wolfsburg furða sig á fjarveru hennar á X, áður Twitter. Þá eru nokkrir áhyggjufullir um að hún gæti verið á förum. 

„Hvar er Sveindís?“ spyrja nokkrir en aðrir segja að í útsendingunni af leiknum hafi ekki verið greint frá því af hverju Sveindís er ekki með. 

Wolfsburg hafnaði í öðru sæti þýsku deildarinnar í vor og varð bikarmeistari enn einu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert