Sveinn Aron fer vel af stað

Sveinn Aron Guðjohnsen skrifaði undir fjögurra ára samning í Noregi.
Sveinn Aron Guðjohnsen skrifaði undir fjögurra ára samning í Noregi. Ljósmynd/Sarpsborg

Framherjinn Sveinn Aron Guðjohnsen fer vel af stað með nýja liði sínu Sarpsborg en liðið vann Brann, 3:1, á útivelli í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöldi. 

Sveinn kom beint inn í byrjunarliðið en hann lagði upp annað mark liðsins á 63. mínútu. 

Sarpsborg er í áttunda sæti deildarinnar með 26 stig en sigurinn er afar sterkur þar sem Brann er í þriðja sæti með 36 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert