Þénaði rúman milljarð og látinn fara

Alex Telles í leik með Manchester United.
Alex Telles í leik með Manchester United. AFP/Paul Ellis

Samningi brasilíska knattspyrnumannsins Alex Telles við Al-Nassr í Sádi-Arabíu hefur verið rift. Cristiano Ronaldo leikur með Al-Nassr og voru þeir einnig liðsfélagar hjá Manchester United.

Al-Nassr greiddi United fjórar milljónir punda fyrir bakvörðinn sem þénaði um sjö milljónir punda, 1,3 milljarð, fyrir eina árið sitt í Sádi-Arabíu.

Telles átti eitt ár eftir af samningi sínum við félagið en félagið og leikmaðurinn komust að sameiginlegri ákvörðun um riftun, þar sem hann var búinn að missa sætið sitt í byrjunarliðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert