Áfall fyrir enska landsliðið

Phil Foden verður ekki með enska liðinu.
Phil Foden verður ekki með enska liðinu. AFP/kirill Kudryavtsev

Þrír leikmenn enska karlalandsliðsins í fótbolta hafa dregið sig úr hópnum sem mætir Írlandi á útivelli og Finnlandi á heimavelli í Þjóðadeildinni.

England mætir grönnum sínum í Írlandi, sem Heimir Hallgrímsson þjálfar, 7. september og Norðurlandaþjóðinni á Wembley 10. september.

Phil Foden leikmaður Manchester City, Cole Palmer hjá Chelsea og Aston Villa-maðurinn Ollie Watkins hafa allir dregið sig úr hópnum.

Foden hefur verið að glíma við veikindi og þeir Palmer og Watkins við meiðsli. Ekki verða kallaðir inn leikmenn í staðinn fyrir þríeykið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert