Ógnað með byssu eftir frumraunina

David Neres fagnar í leiknum á laugardag.
David Neres fagnar í leiknum á laugardag. AFP/Carlo Hermann

Brasilíski knattspyrnumaðurinn David Neres lenti í óskemmtilegri lífsreynslu með eiginkonu sinni Kiru Winona eftir að hann lék sinn fyrsta leik með ítalska liðinu Napólí.

Neres kom til Napólí frá Benfica í Portúgal í sumar og lék sinn fyrsta leik er Napólí vann dramatískan sigur á Parma, 2:1, í A-deildinni á laugardag.

Þegar hann og eiginkona hans voru á leiðinni heim eftir leik mættu þau tveimur mönnum sem brutu glugga á bifreið þeirra og ógnuðu hjónunum með skotvopni.

Höfðu mennirnir á brott með sér úr leikmannsins áður en þeir létu sig hverfa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert