Áfall fyrir lið Svartfjallalands

Stefan Savic, til hægri, rekinn af velli í leik með …
Stefan Savic, til hægri, rekinn af velli í leik með Atlético Madrid. AFP

Lið Svartfjallalands, sem mætir Íslandi í Þjóðadeild karla í fótbolta á Laugardalsvellinum á föstudagskvöldið, hefur orðið fyrir miklu áfalli.

Reyndasti varnarmaður liðsins, Stefan Savic, glímir við meiðsli og staðfest var í dag að hann færi ekki með liðinu til Íslands. 

Vonir eru bundnar við að hann nái að jafna sig á meðan félagar hans fara til Íslands og geti tekið þátt í leik Svartfellinga gegn Wales á mánudaginn kemur.

Savic er burðarás í liði Svartfjallalands en hann er 33 ára miðvörður sem leikur með Trabzonspor í Tyrklandi, spilaði með Atlético Madrid í níu ár og þar á undan með Fiorentina og Manchester City. Hann hefur leikið 73 landsleiki fyrir Svartfjallaland og skorað í þeim 9 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert