Knattspyrnudómari lést 33 ára

Keith Kennedy er látinn.
Keith Kennedy er látinn. Ljósmynd/Knattspyrnusamband Norður-Írlands

Knattspyrnudómarinn norðurírski Keith Kennedy er látinn aðeins 33 ára að aldri.

Kennedy hóf dómaraferilinn árið 2007 og stýrði sínum fyrsta leik í norðurírsku deildarkeppninni þegar hann var aðeins 21 árs.

Hann dæmdi úrslitaleik norðurírska bikarsins árið 2021 og dæmdi sinn síðasta leik 16. ágúst.

BBC greinir frá andlátinu í dag, en dánarorsök eru ekki tekin fram.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert