Skoraði 900. markið á ferlinum

Cristiano Ronaldo bætir enn við mörkum.
Cristiano Ronaldo bætir enn við mörkum. AFP/Patricia De Melo Moreira

Portúgalski knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo skoraði sitt 900. mark í mótsleik á ferlinum í kvöld, í leik gegn Króatíu í Þjóðadeildinni sem nú stendur yfir í Lissabon.

Þar eru Portúgalir yfir í hálfleik, 2:1, og Ronaldo, sem er 39 ára gamall, skoraði annað mark þeirra í leiknum.

Nákvæmlega helming markanna hefur hann skorað fyrir Real Madrid en mörkin 900 skiptast þannig:

450 fyrir Real Madrid
145 fyrir Manchester United
131 fyrir Portúgal
101 fyrir Juventus
68 fyrir Al Nassr
5 fyrir Sporting Lissabon

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert