Beckham snýr sér að tískunni

Romeo Beckham lék með varaliði Brentford áður en hann lagði …
Romeo Beckham lék með varaliði Brentford áður en hann lagði skóna á hilluna. Ljósmynd/Brentford

Romeo Beckham, sonur fyrrverandi knattspyrnumannsins David Beckham, hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna til þess að einbeita sér að starfsferli á öðrum vettvangi, innan tískugeirans.

Romeo er 22 ára gamall og samkvæmt enska götublaðinu The Sun bauðst honum áframhaldandi samningur hjá varaliði Brentford en ákvað Romeo að afþakka boðið.

Á ferlinum lék hann einnig með varaliði Inter Miami, þar sem David faðir hans er eigandi, og um skeið með unglingaliðum Arsenal.

Romeo er búinn að skrifa undir samning við umboðsskrifstofuna Safe Management sem mun hjálpa honum að feta metorðastigann í tískuheiminum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert