Héldu Haaland í skefjum

Erling Haaland komst ekki á blað í dag.
Erling Haaland komst ekki á blað í dag. AFP/Henry Nicholls

Leikmenn Kasakstan náðu að halda Erling Haaland, markahæsta leikmanni ensku úrvalsdeildarinnar, í skefjum í dag þegar þeir tóku á móti Norðmönnum í Þjóðadeild karla í fótbolta.

Liðin gerðu markalaust jafntefli í Almaty í Kasakstan og Haaland lék allan tímann í fremstu víglínu Norðmanna en Kasakar vörðust honum og öðrum mjög vel með sterkum varnarleik.

Þetta var fyrsti leikur riðilsins en þjóðirnar eru í B-deildinni eins og Ísland. Með þeim í riðli eru Austurríki og Slóvenía sem mætast í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert