Markalaust í riðli Íslands

Kieffer Moore í leiknum í kvöld.
Kieffer Moore í leiknum í kvöld. AFP/Henry Nicholls

Wales og Tyrkland gerðu markalaust jafntefli þegar þau mættust í fyrstu umferð 4. riðils B-deildar Sambandsdeildar Evrópu í knattspyrnu karla, riðli Íslands, í Cardiff í Wales í kvöld.

Wales lék einum fleiri í um hálftíma í kvöld eftir að Baris Yilmaz í liði Tyrklands fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 63. mínútu.

Tókst heimamönnum ekki að nýta sér liðsmuninn og fór að lokum svo að hvorugu liðinu tókst að skora.

Ísland er þar með eitt á toppi riðilsins eftir 2:0-sigurinn á Svartfjallalandi í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert