Meiddist við að hnerra

Victor Adeboyejo í leik með Bolton gegn Luton.
Victor Adeboyejo í leik með Bolton gegn Luton. AFP/Justin Tallis

Victor Adeboyejo, framherji Bolton Wanderers í ensku C-deildinni í knattspyrnu, missti af leik liðsins í bikarkeppni neðri deilda á Englandi í vikunni af afar óvenjulegri ástæðu.

Adeboyejo meiddist á baki á mánudag eftir að hann hnerraði harkalega. Ian Evatt, knattspyrnustjóri Bolton, greindi frá ástæðu fjarverunnar í samtali við Bolton News eftir 3:2-sigur á Barrow á þriðjudagskvöld.

„Hann hnerraði ansi hressilega. Victor er kraftmikill strákur og meira að segja hnerrarnir hans eru kraftmiklir. Hann fann fyrir braki milli rifbeina sinna.

Við erum að vonast til þess að þetta sé bara brjósk- eða vöðvameiðsli en þar til við fáum niðurstöðu úr myndatöku vitum við það ekki.

Ég verð að líta í eigin barm þegar leikmenn eru farnir að meiðast við það að hnerra,“ sagði Evatt en fjöldi leikmanna Bolton eru frá vegna meiðsla um þessar mundir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert