Færeyingar byrja á jafntefli

Víkingurinn Gunnar Vatnhamar var í liði Færeyja í dag.
Víkingurinn Gunnar Vatnhamar var í liði Færeyja í dag. Ljósmynd/Inpho Photography

Færeyingar gerðu jafntefli við Norður-Makedóníumenn, 1:1, í fyrsta leik sínum í C-deild Þjóðadeildar karla í fótbolta á Tórsvelli í Þórshöfn í dag.

Viljormur Davidsen kom Færeyingum yfir úr vítaspyrnu strax á 9. mínútu en Enis Bardhi jafnaði fyrir Norður-Makedóníu, einnig úr vítaspyrnu, á 49. mínútu.

Gunnar Vatnhamar úr Víkingi lék fyrstu 85 mínúturnar með Færeyingum og þegar hann fór af velli kom Patrik Johannesen úr Breiðabliki inn á sem varamaður.

Armenía og Lettland eru í þessum sama riðli og mætast síðdegis í dag. Færeyingar eiga síðan útileik gegn Lettlandi á þriðjudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert