Landsliðskonan Hlín Eiríksdóttir skoraði sigurmarkið í útisigri Kristianstad á Hammarby, 2:1, í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Kristianstad er í fjórða sæti deildarinnar með 33 stig en Hammarby er sæti ofar með 42 stig.
Hammarby komst snemma yfir en Kristianstad jafnaði í fyrri hálfleik, 1:1. Sigurmark Hlínar kom síðan á 79. mínútu leiksins.
Hlín lék allan leikinn fyrir Kristanstad líkt og Katla Tryggvadóttir en Guðný Árnadóttir fór af velli undir lok leiks.