Úr leik hjá Spánverjum

Dani Olmo, til hægri, í baráttu við Nikola Milenkovic, fyrirliða …
Dani Olmo, til hægri, í baráttu við Nikola Milenkovic, fyrirliða Serba, í leiknum í Belgrad. AFP/Andrej Isakovic

Dani Olmo verður ekki með Evrópumeisturum Spánverja í kvöld þegar þeir mæta Sviss á útivelli í Þjóðadeild karla í fótbolta.

Olmo meiddist í leik Spánverja gegn Serbum í Belgrad á fimmtudaginn, þegar liðin gerðu markalaust jafntefli. Hann er farinn heim til Barcelona, samkvæmt spænska knattspyrnusambandinu.

Ekki er talið að um alvarleg meiðsli sé að ræða.

Danmörk og Serbía mætast í hinum leik riðilsins í dag en Danir unnu Sviss 2:0 á fimmtudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert