Dreymir um að spila með City-manninum

Lamine Yamal og Kevin De Bruyne.
Lamine Yamal og Kevin De Bruyne. Ljósmynd/Samsett

Spænski knattspyrnumaðurinn Lamine Yamal var fljótur til svars þegar hann var spurður hvaða leikmanni honum myndi mest langa til þess að spila með á ferlinum.

Kevin De Bruyne, sagði Yamal í viðtali á spænsku útvarpsstöðinni Radioestadio Noche.

Yamal er aðeins 17 ára gamall en er þegar orðinn lykilmaður hjá Barcelona og spænska landsliðinu, þar sem hann spilaði stórt hlutverk í sigri Spánverja á EM 2024 í Þýskalandi í sumar.

De Bruyne er 33 ára miðjumaður Englandsmeistara Manchester City og belgíska landsliðsins og því hefur Yamal eflaust ekki mörg ár til þess að fá tækifæri til þess að spila með Belganum snjalla áður en skór hans fara á hilluna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert