14 ára spilaði A-landsleik

Myndin tengist ekki fréttinni með beinum hætti.
Myndin tengist ekki fréttinni með beinum hætti. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samuel Harvey lék sína fyrstu A-landsleiki fyrir karlalandslið Turks- og Caicoseyja í Þjóðadeild Norður- og Mið-Ameríku í nýafstöðnum landsleikjaglugga. Harvey er aðeins 14 ára gamall.

Hann er fæddur 15. október árið 2009 og verður því 15 ára gamall í næsta mánuði.

Það kom þó ekki í veg fyrir að Harvey hafi fengið tækifærið í marki Turks- og Caicoseyja í tveimur leikjum í Þjóðadeildinni.

Stóð hann í markinu í 4:0-tapi fyrir Belís og 2:0-tapi fyrir Angvilla.

Harvey er þó ekki yngsti leikmaðurinn sem hefur spilað A-landsleik í karlaknattspyrnu. Lucas Knecht var aðeins 14 ára og tveggja daga gamall þegar hann spilaði landsleik fyrir Norður-Maríanaeyjar árið 2007.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert