Cecilía og stöllur af stað með látum

Cecilía Rán Rúnarsdóttir byrjar vel hjá Inter.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir byrjar vel hjá Inter. Ljósmynd/Inter

Inter Mílanó fer afskaplega vel af stað í ítölsku A-deildinni í fótbolta en liðið vann Napolí, 4:1, í Napolí í dag. 

Landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir er á láni hjá Inter frá Bayern München en hún hefur varið mark Inter í fyrstu tveimur leikjunum. 

Inter vann Sampdoria í fyrsta leik, 5:0, og hefur liðið því skorað níu mörk og fengið aðeins eitt á sig. 

Þess vegna er Inter í efsta sæti deildarinnar á markatölu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert