Helgi Fróði Ingason og liðsfélagar hans í Helmond Sport unnu góðan sigur á Oss, 1:0, í hollensku B-deildinni í knattspyrnu karla í kvöld.
Helmond er þar með áfram á toppi deildarinnar, nú með 14 stig eftir sex leiki.
Helgi Fróði, sem er aðeins 18 ára gamall, er þegar kominn í stórt hlutverk hjá Helmond eftir að hann gekk til liðs við félagið frá uppeldisfélagi sínu Stjörnunni í síðasta mánuði.
Hefur hann tekið þátt í fimm af sex leikjum liðsins á tímabilinu, byrjað þrjá þeirra og lagt upp eitt mark.
Í kvöld var hann í byrjunarliðinu og var tekinn af velli á 70. mínútu.