Orðin sú launahæsta í sögunni

Aitana Bonmatí vann Gullboltann á síðasta ári.
Aitana Bonmatí vann Gullboltann á síðasta ári. AFP

Aitana Bonmatí, miðjumaður Evrópumeistara Barcelona og heimsmeistara Spánar, er orðin launahæsta knattspyrnukona í sögunni eftir að hún skrifaði undir nýjan samning við Börsunga.

Bonmatí, sem vann Gullboltann á síðasta ári, skrifaði undir samning við Barcelona sem gildir til sumarsins 2028.

ESPN greinir frá því að launahæstu knattspyrnukonur heims sem spila í Bandaríkjunum fái tæplega 700.000 bandaríkjadali í árslaun, um 95 milljónir íslenskra króna, en að nýr samningur Bonmatí feli í sér hærri árslaun þó nákvæm upphæð sé ekki tekin fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert