Lingard í klandri

Jesse Lingard
Jesse Lingard AFP/Paul Ellis

Enski miðjumaðurinn Jesse Lingard sætir lögreglurannsókn í Suður-Kóreu, þar sem hann spilar fyrir FC Seoul. Ástæðan er akstur rafmagnshlaupahjóls án réttinda.

Frægðarsól Lingard hefur lækkað undanfarin ár en miðjumaðurinn var lengi félagslaus eftir að eins árs samningur hans við Nottingham Forest rann út síðasta sumar. Lingard gekk til liðs við Seoul í febrúar en er nú kominn í fréttirnar fyrir óvenjulegt lögbrot.

Lingard birti myndband af sér á Snapchat þar sem hann keyrði um á rafmagnshlaupahjóli en það án hjálms og réttinda til að aka slíku hlaupahjóli í miðborg Seoul.

Lingard lék á ferli sínum 32 landsleiki fyrir England en það er ólíklegt að þeir verði fleiri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert