Kærir leikmann Tottenham

Richarlison er leikmaður Tottenham.
Richarlison er leikmaður Tottenham. AFP/Henry Nicholls

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Richarlison hefur verið kærður af fyrrverandi aðstoðarmanni sínum Reginaldo Pereira.

Hinn 60 ára gamli Pereira sakar Richarlison um illa meðferð og hefur krafið hann um 17 milljónir punda.

Pereira fylgdi Richarlison frá Brasilíu til Englands er sóknarmaðurinn samdi við Watford árið 2017.

Að sögn aðstoðarmannsins fyrrverandi lét Richarlison hann vinna langa vinnudaga, neitaði honum um frí og fékk sífellt fleiri verkefni. Hann þurfti til að mynda að sjá um gæludýr leikmannsins.

Richarlison leikur nú með Tottenham en hann hefur einnig spilað með Everton síðan hann flutti til Englands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert