Rúmenski knattspyrnumaðurinn Adrian Petre hefur lagt skóna á hilluna en hann er aðeins 26 ára gamall.
Framherjinn gerði ágæta hluti með Esbjerg í Danmörku þar sem hann skoraði 24 mörk í 75 deildarleikjum á árunum 2017-2020.
Í kjölfarið samdi hann við FCSB, eitt stærsta félag Rúmeníu, og var búist við miklu af sóknarmanninum.
Það gekk hins vegar illa hjá honum að festa sig í sessi, því Petre hefur leikið með átta félögum á undanförnum fjórum árum.
Hann lék 18 leiki fyrir U21 árs landslið þjóðar sinnar og skorað í þeim fimm mörk.