Fredericia hafði betur gegn B.93 á heimavelli í dönsku B-deildinni í fótbolta í dag, 3:0.
Daníel Freyr Kristjánsson, 19 ára leikmaður U21 árs landsliðs Íslands, lagði upp eitt markanna fyrir Fredericia.
Bakvörðurinn er uppalinn Stjörnumaður sem fór ungur að árum til Midtjylland í Danmörku. Hann er að láni hjá Fredericia.