Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði í fótbolta til margra ára, lék sinn fyrsta deildarleik með Al Qadsiah í efstu deild Sádi-Arabíu í fótbolta í dag.
Sara og stöllur máttu þola tap á útivelli gegn Al-Ittihad, 2:1. Sara fékk gullið tækifæri til að skora sitt fyrsta mark í nýju landi á 22. mínútu en henni mistókst að skora úr vítaspyrnu.
Hún lagði hins vegar upp mark liðsins á 86. mínútu er það minnkaði muninn í 2:1 og þar við sat.