OH Leuven vann öruggan útisigur á Waregem, 4:0, í efstu deild Belgíu í fótbolta í dag.
Diljá Ýr Zomers var í byrjunarliði Leuven og hún skoraði fyrsta mark leiksins á 17. mínútu. Hefur landsliðskonan spilað afar vel með Leuven eftir að hún kom til félagsins fyrir síðustu leiktíð.
Liðið er í toppsætinu með 13 stig, einu stigi meira en Westerlo í öðru sæti.