Atli og Sævar Atli lögðu upp

Sævar Atli Magnússon lagði upp jöfnunarmark Lyngby í dag.
Sævar Atli Magnússon lagði upp jöfnunarmark Lyngby í dag. Ljósmynd/Lyngby

Knattspyrnumennirnir Atli Barkarson og Sævar Atli Magnússon lögðu báðir upp með sínum félagsliðum í dag.

Atli og félagar í Zulte-Waregem sigruðu Anderlecht U23, 3:2, í belgísku B-deildinni. Atli lagði upp annað mark liðsins sem kom á 32. mínútu. Liðið er nú í öðru sæti deildarinnar með 13 stig eftir sex leiki.

Sævar Atli lagði upp jöfnunarmark Lyngbysem kom á fjórðu mínútu uppbótartímans gegn Silkeborg en leikurinn endaði 2:2. Lyngby er í 11. sæti með sjö stig eftir 10 leiki í dönsku úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert