Christine Sinclair, markahæsti leikmaður í sögu kvenna- og karlalandsliða í knattspyrnu, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið.
Hún er 41 árs gömul og spilar með Portland Thorns í bandarísku NWSL-deildinni. Á síðasta ári spilaði hún sinn síðasta landsleik fyrir Kanada en hún skoraði 190 mörk fyrir landsliðið í 331 landsleik.
Sinclair hefur spilað með Portland frá 2013, ári eftir að liðið var stofnað, og félagið mun heiðra hana í lokaleik tímabilsins sem er gegn Angel City 2. nóvember.