Real Madrid og Atlético Madrid gerðu 1:1-jafntefli í Madrídarslagnum í spænsku 1.deild karla í knattspyrnu í kvöld.
Brasilíumaðurinn Éder Militao skoraði fyrsta mark leiksins eftir stoðsendingu frá landa sínum Vinícius Júnior.
Á fimmtu mínútu uppbótartíma jafnaði Argentínumaðurinn Ángel Correa metin fyrir Atlético. Lokaniðurstaða 1:1-jafntefli.
Real Madrid situr áfram í öðru sæti með 18 stig, þremur stigum á eftir Barcelona á toppnum. Atlético er í þriðja sæti deildarinnar með 16 stig.